Hvíti kjóllinn vakti athygli

Angelina Jolie leikstýrir kvikmyndinni Unbroken.
Angelina Jolie leikstýrir kvikmyndinni Unbroken. AFP

Leikkonan Angelina Jolie hefur á undanförnum árum tileinkað sér kvenlegan og smart stíl. Hún sýndi það og sannaði fyrr í vikunni á frumsýningu kvikmyndarinnar Unbroken.

Jolie klæddist skjannahvítum kjól frá Ralph & Russo á frumsýningunni í London. Hún tók sig vel út í kjólnum sem er með einhverskonar herðaslá. Jolie klæddist svo ljósum hælaskóm við og hafði hárið uppsett.

Jolie leikstýrir myndinni Unbroken en myndin kemur í íslensk kvikmyndahús í byrjun janúar.

Angelina Jolie klæddist kjól frá Ralph & Russo.
Angelina Jolie klæddist kjól frá Ralph & Russo. AFP
Angelina Jolie skemmti sér vel á frumsýningu Unbroken í London.
Angelina Jolie skemmti sér vel á frumsýningu Unbroken í London. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál