Flottur eða fráleitur loðjakki?

Elizabeth Hurley var glæsileg þegar hún sótti tískuvikuna í Berlín …
Elizabeth Hurley var glæsileg þegar hún sótti tískuvikuna í Berlín á þriðjudaginn. AFP

Leikkonan Elizabeth Hurley var miðpunktur athyglinnar þegar hún gekk rauða dregilinn á tískuvikunni í Berlín á þriðjudaginn. Hurley mætti í níðþröngum leðurbuxum, támjóum pinnahælum og ljósbláum loðjakka.

Hin 49 ára Hurley sótti  Marc Cain-sýninguna og vakti athygli eins og vanalega. Jakkinn sem Hurely klæddist er einstakur en óljóst er hvaðan hann kemur. Jakki Hurley hefur þó fengið misjöfn viðbrögð; sumum þykir hann flottur en öðrum þykir hann fráleitur.

Leikkonan Katie Holmes lét sig ekki vanta. Hún mætti í grárri kápu úr smiðju Marcs Cains en kápan sem Holmes klæddist var sýnd á sjálfri sýningunni. Holmes er greinilega vel tengd innan tískubransans.

Elizabeth Hurley vakti athygli í þessum bláa loðjakka.
Elizabeth Hurley vakti athygli í þessum bláa loðjakka. AFP
Katie Holmes er vel tengd innan tískubransans.
Katie Holmes er vel tengd innan tískubransans. AFP
Katie Holmes klæddist grárri kápu á fremstu röð á meðan …
Katie Holmes klæddist grárri kápu á fremstu röð á meðan fyrirsætan sýndi samskonar kápu á tískupallinum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál