Pokabuxurnar með endurkomu

Rihanna er stjarna nýjasta tölublaðs I-D.
Rihanna er stjarna nýjasta tölublaðs I-D.

Þröngar buxur hafa tröllriðið öllu lengi vel en nú virðist buxnatískan vera að taka u-beygju. Söngkonan Rihanna prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs I-D og inni í blaðinu má þá finna flottan myndaþátt. Rihanna klæðist víðum gallabuxum í anda tíunda áratugarins á einni myndinni, myndaþátturinn er eitt af því sem gefur til kynna að tískan sé að breytast og víðar buxur komi sterkar inn.

Víðar buxur hafa þá verið áberandi á tískusýningum nokkurra helstu hönnuða heims undanfarið og einnig í tískuvöruverslunum. Þeir sem klæddust gjarnan pokabuxum um miðjan tíunda áratuginn geta nú tekið þessum ferska tískustraumi opnum örmum.

Útvíðar buxur frá Balmain.
Útvíðar buxur frá Balmain. net-a-porter.com
Víðar buxur frá Chloé. Fást á net-a-porter.com.
Víðar buxur frá Chloé. Fást á net-a-porter.com. net-a-porter.com
Buxur úr smiðju Proenza Schouler.
Buxur úr smiðju Proenza Schouler. net-a-porter.com
Buxur frá Suno.
Buxur frá Suno. net-a-porter.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál