Nakin á götum New York

Erfiðast fannst Simone að fylgjast með því hvernig borgarbúar létu …
Erfiðast fannst Simone að fylgjast með því hvernig borgarbúar létu heimilislausa sig litlu varða meðan hlaupið var á útsölur. Erica Simone

Franski ljósmyndarinn Erica Simone hefur síðustu sex árin stillt sér nakin upp á götum New York-borgar og tekið sjálfsmyndir. 

Næsta skref er að gefa út bók með myndunum en tilgangurinn er að fá fólk til að hugsa út í uppruna okkar, við fæðumst jú öll nakin. 

Erica stígur út úr leigubíl á Manhattan, kviknakin.
Erica stígur út úr leigubíl á Manhattan, kviknakin. Erica Simone

„Hversu langt erum við eiginlega komin frá uppruna okkar þegar það er orðið ólöglegt að vera nakin á almannafæri?,“ spyr Simone í viðtali við MailOnline en hún stefnir á að safna sér 10.000 dölum til að eiga fyrir útgáfu og dreifingu bókarinnar. Þegar hafa safnast 6.500 dalir og enn eru 28 dagar eftir þar til söfnun lýkur. 

Simone segir klæðaburð okkar vera þögult tungumál. Með fötunum leitumst við við að sýna hver við erum eða hvernig við viljum að hinn ytri heimur sjái okkur. 

Aftan á mótorhjóli í engu nema sjálfri sér.
Aftan á mótorhjóli í engu nema sjálfri sér. Erica Simone

Erica Simone hefur unnið að myndunum í nokkur ár en sumar hafa áður verið til sýnis í Dash galleríinu í Tribeca-hverfinu í New York. 

Í bókinni verður hægt að skoða allar bestu myndirnar en þar er ljósmyndarinn við fjölbreyttar aðstæður sem flestar tengjast daglegu lífi í stórborginni. Hvort sem er að velja bók á bókasafninu, skjóta í sig skyndibita eða ferðast með lestum. 

Ein þeirra sýnir Simone nakta með húfu og pappaspjald með áletraðri ósk um styrki, hún þurfi að eignast ný föt. 

Leitað að bók í engri brók.
Leitað að bók í engri brók. Erica Simone

„Verst fannst mér að upplifa borgarbúa horfa framhjá heimilislausa fólkinu meðan þeir flýttu sér að komast á útsölurnar hjá Barneys,“ segir Simone. 

Óhætt er að segja að hér sé um skemmtilega ögrandi verkefni að ræða en á heimasíðu PubSlush er hægt er að skoða söfnunarsíðu Simone og styrkja hana til útgáfunnar. 

Skyndibitinn bragðast eflaust eins þó maður sé nakinn.
Skyndibitinn bragðast eflaust eins þó maður sé nakinn. Erica Simone
Ber í flugvél. Simone segir þessa myndatöku hafa verið nokkuð …
Ber í flugvél. Simone segir þessa myndatöku hafa verið nokkuð mikla áskorun fyrir sig. Erica Simone




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál