Met Gala-ballið var haldið í New York í gær og stjörnurnar flykktust á rauða dregilinn og fóru í hálfgerðan búningaleik.
Kim Kardashian og Beyoncé vöktu sérstaklega mikla athygli á ballinu en þær klæddust báðar hálfgegnsæjum kjólum. Kjóll Beyoncé er úr smiðju Givenchy og kjóll Kim kemur frá Roberto Cavalli.
Rihanna vakti líka töluvert umtal en hún klæddist furðulegu dressi frá Guo Pei.
Tískudrottningin Sarah Jessica Parker var ekki alveg með puttann á tískupúlsinum í gær en hún klæddist kjól frá H&M og var með sérstakt höfuðfat. Myndirnar tala sínu máli.
Beyonce og Jay Z létu sig ekki vanta.
AFP
Miley Cyrus og Zoe Kravitz eru orðnar góðar vinkonur.
AFP
Amal Clooney og George Clooney voru flott að vanda.
AFP
Rihanna var alveg út úr kú í gær á Met Gala ballinu.
AFP
Donatella Versace og Jennifer Lopez héldust hönd í hönd á Met Gala ballinu.
AFP
Jennifer Lawrence skein skært á rauða dreglinum í gær.
AFP
Kris Jenner var eins og 80's-drottning á Met Gala ballinu.
AFP
Kendall Jenner sýndi smá hold.
AFP
Justin Bieber og Olivier Rousteing settu sig í stellingar.
AFP
Sarah Jessica Parker fór í smá búningaleik.
AFP
Kate Hudson mætti í gullkjól.
AFP
Anna Wintour vakti athygli í þessum áberandi kjól.
AFP
Anne Hathaway klæddist kjól með hettu. Kjóllinn er frá Ralph Lauren.
AFP
Amanda Seyfried klæddist kjól frá Givenchy.
AFP
Georgia May Jagger í Gucci.
AFP
Cara Delevingne klæddist samfesting frá Stellu McCartney.
AFP
Solange í Giles Deacon.
AFP
Carey Mulligan var flott í Balenciaga kjól.
AFP