Manuela Ósk Harðardóttir er á leið í Kolaportið þar sem hún ætlar að selja utan af sér spjarirnar í dag. Hún þykir ein best klædda skvísa landsins og því ætti að vera nóg til. Í samtali við Smartland Mörtu Maríu segir Manuela Ósk að hún geri þetta reglulega, að selja af sér spjarirnar í Kolaportinu og það veiti ekki af að rýma til reglulega.
Manuela Ósk er á leið til Parísar á fötudaginn og þarf pláss fyrir eitthvað nýtt úr geggjuðu vintage-búðunum sem þar eru. „Ég ætla aðeins að kafa ofan í þær,“ segir hún og hlær.
Þær sem vilja skoða góssið geta fundið Manuelu Ósk á bás B4.