Amal Clooney stal senunni í Tokyo

Amal Clooney klæddist Missoni-kjól á flugvellinum í Tokyo.
Amal Clooney klæddist Missoni-kjól á flugvellinum í Tokyo. AFP

Amal Clooney, eiginkona George Clooney, stal senunni á frumsýningu kvikmyndarinnar Tomorrowland í Tokyo í gær. Amal klæddist sérsniðnum gulum kjól úr smiðju Maison Margiela.

Amal er mikil tískudrottning og klæddist Manolo Blahnik hælaskóm og var með Bulgari handtösku við kjólinn.

Amal vakti ekki aðeins athygli á frumsýningunni sjálfri heldur einnig á flugvellinum þegar skötuhjúin lentu í Tokyo. Þá klæddist hún litríkum stuttum kjól frá Missoni sem er ekki ennþá kominn í almenna sölu og 82.000 króna skóm frá Valentino.

Amal klæddist þessum skóm í brúnu á flugvellinum.
Amal klæddist þessum skóm í brúnu á flugvellinum. net-a-porter.com
Amal og George voru glæsileg á frumsýningunni Tomorrowland.
Amal og George voru glæsileg á frumsýningunni Tomorrowland. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál