Klæddist 4.000 króna buxnapilsi

Jennifer Lopez var smart á setningu tónlistahátíðarinnar Mawazine.
Jennifer Lopez var smart á setningu tónlistahátíðarinnar Mawazine. AFP

Jennifer Lopez skildi lítið eftir fyrir ímyndunaraflið á tónlistarhátíðinni Mawazine sem haldin var í Morocco í gær. Lopez klæddist þröngum gegnsæjum blúndubol og ljósbleiku buxnapilsi við setningu hátíðarinnar. Mikla athygli hefur vakið að buxnapilsið sem Lopez klæddist er hræódýrt en það kostar tæpar 4.000 krónur í versluninni Forever 21.

Lopez er vön að klæðast aðeins því dýrasta og besta en í gær steig hún út fyrir þægindarammann og klæddist þessu ódýra buxnapilsi. En sömu sögu er ekki hægt að segja um blúndublússuna því hún kemur úr smiðju Tamara Mellon og mun kosta skildinginn þegar hún kemur í almenna sölu í haust.

Hún kann að vekja á sér athygli konan.

Buxurnar sem Jennifer Lopez klæddist kosta aðeins 3.910 krónur.
Buxurnar sem Jennifer Lopez klæddist kosta aðeins 3.910 krónur. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál