Ilmvötn með lækningamátt

Glösin eru sérlega falleg.
Glösin eru sérlega falleg.

Ilmvatn á sannarlega að vera gefandi í öllum skilningi, þótt því fari víðsfjarri í mörgum tilfellum. Nú má í fyrsta sinn á Íslandi fá ekta ilmvatn unnið samkvæmt strangri franskri ilmvatnshefð með lífrænum innihaldsefnum, ilmvötn sem eru líka án eiturs og aukefna. Þessi snjalla ilmvatnshönnun byggir á blómadropafræðum hins þekkta breska læknis Dr. Edward Bach, hvers hugmyndafræði snéri að því að fanga aðeins það dýpsta og fegursta úr hverri jurt, í þeim tilgangi að hafa jákvæð áhrif á líf okkar og líðan.

Nafn Dr. Bach þekkja margir, líka hér á landi, en hann sérhæfði sig í smitsjúkdómafræði og síðar smáskammtalækningum. Við reynslu sína af læknastörfum, m.a. í fyrri heimstyrjöldinni, öðlaðist hann þá sterku sýn að flesta líkamlega kvilla og sjúkdóma mætti rekja til tilfinningalegs álags og ójafnvægis. Líklega er bráða- eða áfallaremidían (rescue remedy) hans þekktasta blómaremidía. Fjölmargir víða um heim grípa til hennar þegar þeir verða fyrir áfalli, sjokki eða jafnvel meiðslum eða slysum. Auk þess sem fjöldi fólks leggur aldrei af stað í ferðalög án þess að hafa bráðaremidíuna í farangrinum. M.a. hafa tvíblindar samanburðar rannsóknir stutt jákvæð áhrif bráðaremidíunnar á heila.

Ilmvötnin fást í Systrasamlaginu.
Ilmvötnin fást í Systrasamlaginu.

Dr. Bach þróaði 38 tegundir af blómakrafti í þeim tilgangi að fyrirbyggja sjúkdóma sem rekja má til tilfinningalegs álags og langvarandi spennuástands. Eru droparnir notaðir í sinni tærustu mynd í frönsku Dr. Bach ilmvötnin í bland við hreina og gefandi ilmi.

Nokkrar tegundir af þessum vönduðu ilmvötnum má nú fá í Systrasamlaginu. Þetta eru ilmvötn sem ýmist færa orku, hugrekki, ró, bæta svefn, hressa, auka skerpu, sjálfstraust eða samkennd, svo fátt eitt sé nefnt. Sem dæmi um það eru ekta ilmvötnin tvö: Eau de Parfume n°1 –Présence og Eau de Pafrume n°2 Vivacité. Hið fyrra eða ilmvatn n°1 gefur styrk, jafnvægi og innri frið. Í efsta lagi þess er m.a. vervein og bergsóley, í miðjunni rós og geitatoppur og í neðsta laginu eik og villieplatré, allt þekktar jurtir úr blómadropafræðunum. T.d. er gaman að geta þess að vervain er oft gefið þeim sem eru of stjórnsamir og kvíðnir eða börnum sem eiga erfitt með að slaka á. Í ilmvatni n°2, Vivacité, sem óvænt höfðar bæði til kvenna og karla, er hins vegar meira um við og krydd. Það er mjög orkugefandi og endurnærandi og í því má líka eygja von. Í efsta lagi þess er þyrnirunni og kornblóm, í miðjunni agnbeyki og hvít kastanía og í því neðsta lerki og mustarður, sem allt þjónar sterkum tilgangi.

Einnig eru nokkrar tegundir Eaux de Toilette undir merkjum Dr. Bach sem eru lífrænt vottaðir af Ecocert. Þeir eru Allégresse, sem nærir lífsþorstann og er hannað til að endurnýja orkuna, Harmonie sem færir ró og jafnvel notalega tilfinningu, Audace fyrir sjálfstraustið og Félicité fyrir frið og æðruleysi. Það er jafnvel sagt bægja burt óþægindum en það hangir svosem hinum megin á spýtunni. Það er bara spurning eftir hverju fólk sækist sérstaklega. Hitt þó líka vitað að nefið, þetta magnaða skilningavit, lýgur sjaldan. Það er því kannski óþarfi að kynna sér nákvæmlega hvað hver ilmur gefur heldur láta nefið ráða för. Það kemur oftast heim og saman við hvað fólk er að fást og sækist eftir hverju sinni.

Hrein og góð ilmvötn með heilandi blómadropum eru góð tíðindi í ljósi þess að upphaflega voru ilmvötn og allskyns ilmblöndur hannaðar með það í huga að vera gefandi ekki spilla. Það sem síðar gerðist er að allskyns kemískum efnum var blandað saman við ilmvötnin og margir stóðu eftir með óþol og jafnvel bráðaofnæmi. Það er sem dæmi sorgleg staðreynd að í dag geta ilmvötn innihaldið allt 250 kemísk efni, sem sum eru talin krabbameinsvaldandi á meðan kannski önnur eru skaðlausari.

Þótt menn, en þó einkum konur, noti kannski lítið magn daglega (í bland við allar hinar snyrtivörurnar) getur notkun þess 360 daga ársins sannarlega haft heilsuspillandi áhrif. Eða á sama hátt verið gefandi, kjósi fólk vönduð ilmvötn með heilnæmum jurtum og losi sig um leið við auka- og eiturefni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál