Hin 46 ára Jennifer Lopez fangaði afmælinu sínu í lok seinasta mánaðar. Lopez hélt heljarinnar partí í tilefni dagsins og klæddist kjól sem vakti gífurlega athygli, en hvaðan kemur kjóllinn?
Kjólinn frægi er gegnsær að hluta til, meðal annars að aftan þannig að rass Lopez blasti við viðstöddum. Söngkonan leit svo sannarlega vel út í kjólnum og nú vilja allir vita meira um kjólinn. Kjóllinn kemur úr smiðju hönnuðarins Bao Tranchi en hún sérhæfir sig í efnislitlum kjólum og aukahlutum sem sýna mikið hold. Kynþokkinn er númer eitt, tvö og þrjú hjá Tranchi.
Svo virðist sem Tranchi hafi loksins fengið stóra tækifærið sitt þegar Lopez klæddist kjólnum hennar því allir eru að tala um kjólinn eftirtektaverða.