Acne leðurjakkinn í uppáhaldi

Uppáhalds hlutur Livar er Acne Rita leðurjakki sem hún fékk …
Uppáhalds hlutur Livar er Acne Rita leðurjakki sem hún fékk í jólagjöf frá kærasta sínum. Ljósmynd/Úr einkasafni

Liv er 22 ára sálfræðinemi sem búsett er í Danmörku þar sem hún mun vera í skiptinámi við Kaupmannarhafnarháskóla næsta árið. Meðfram skóla hefur hún unnið við fyrirsætustörf og æft á píanó frá blautu barnsbeini.

Hvað er það seinasta sem þú keyptir þér og elskaðir?

„Það eru í rauninni tveir hlutir. Var að leita mér að kjól fyrir brúðkaupsveislu í sumar og fann silkikjól frá Acne í svokölluðu terrazzo munstri.  Stuttu fyrir þau kaup var ég búin að fjárfesta í koparlituðum skóm frá Won Hundred sem smellpassa við kjólinn.“

Í hverju ætlar þú að fjárfesta næst?

„Round metal sólgleraugum með bláu gleru frá Rayban og hjólahjálm frá Ribcap. Hér í Kaupmannahöfn þarf maður nefnilega líka að huga að hjólaoutfittinu.“

Hver er uppáhalds hluturinn þinn?

„Acne Rita leðurjakki sem ég fékk í jólagjöf frá kærastanum mínum, get notað hann við öll tilefni og hann gengur við allt. Tímalaus flík sem ég sé fram á að eiga í mörg ár.“

Ljósmynd/Úr einkasafni

Hvað er ógleymanlegasti staður sem þú hefur ferðast til á seinasta ári?

„Eyddi seinustu jólum og áramótum í Marrakech með fjölskyldunni minni, ótrúlega framandi en á sama tíma spennandi staður.“

Hver er besti minjagripur sem þú hefur tekið með þér úr ferðalagi?

„Fór á skartgripamarkað í Japan þar sem ég keypti mér gullfallega eyrnalokka.“

Hvaða hlut myndir þú aldrei láta frá þér?

„Hálsmen sem að pabbi minn gaf mér frá Indlandi.“

Acne Rita leðurjakki.
Acne Rita leðurjakki.

Seinasta máltíð sem þú naust virkilega að borða?

„Ég fór í seinustu viku á veitingastaðinn Geist sem er staðsettur í Kaupmannahöfn. Þar eru framreiddir smáréttir sem eru skandinavískir í grunninn en með keim frá ýmsum heimshornun. Ég fékk meðal annars ótrúlega gott wasabi toffee í eftirrétt sem var svo fylgt eftir með kandíflossi.“

Hver er sá munaður sem þú gætir aldrei sleppt?

„Súkkulaði.“

Hver er seinasti aukahlutir sem þú keyptir þér?

„Keypti mér hatt frá Janessa Leone sem mig var búið að dreyma um í þó nokkurn tíma.“

Uppáhalds snyrtivara?

„Á erfitt með að velja bara eina en ég nota Benetint frá Benefit nánast dagsdaglega.“

Uppáhalds smáforrit?  

„Nota Pinterest mjög mikið, elska hvað það er auðvelt að fá innblástur og hugmyndir fyrir nánast hvað sem er.“


                                               

Liv eyddi seinustu jólum og áramótum í Marrakech með fjölskyldunni.
Liv eyddi seinustu jólum og áramótum í Marrakech með fjölskyldunni. Ljósmynd/Úr einkasafni
Ljósmynd/Úr einkasafni
Liv gæti aldrei neitað sér um súkkulaði.
Liv gæti aldrei neitað sér um súkkulaði. Ljósmynd/Úr einkasafni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál