Þótt stjörnurnar séu yfirleitt vel til hafðar og glæsilegar til fara geta þær stundum stigið feilspor. Enda bara mannlegar eftir allt saman. Hér eru nokkrir af þeim skrautlegustu kjólum sem Met Gala viðburðurinn, sem fram fór í gær, hefur af sér alið.
Fleiri myndir má sjá á vef Mirror.
Margir líktu Givency kjólnum sem Kim Kardashian klæddist árið 2013 við gluggatjöld.
Skjáskot Mirror
Í fyrra kaus Solange Knowles að klæðast fremur sérstæðum kjól, sem eflaust var jafn óþægilegur og hann var skrýtinn. Kjólinn hannaði Giles Deacon.
Skjáskot Mirror
Katy Perry er þekkt fyrir litskrúðugan stíl, en mörgum þótti þó um of þegar hún mætti á rauða dregilinn íklædd síðkjól frá Moschino. Í stíl við kjólinn bar hún síðan handtösku í líki spreybrúsa.
Skjáskot Mirror
Hvorki kjóll né höfuðskraut Söruh Jessicu Parker féll í kramið hjá gagnrýnendum hátíðarinnar í fyrra. Höfuðskrautið þótti fremur minna á leikmun í óperu heldur en skart.
Skjáskot Mirror
Það er svo sem engin nýlunda að söngkonan Lady Gaga sjáist opinberlega í skringilegri múnderingu. Hún þótti þó ekki hitta í mark á Met Gala í fyrra.
Skjáskot Mirror