Hártískan er að taka „u-beygju“

Svona einhvern veginn er hártískan í sumar.
Svona einhvern veginn er hártískan í sumar. Skjáskot af Pinterest

Hártískan í sumar er virkilega skemmtileg að sögn Katrínar Sifjar, hárgreiðslukonu og eins eiganda hárgreiðslustofunnar Sprey. „Hún er að taka smá u-beygju frá því sem var í tísku í vetur,“ segir Katrín í viðtali sem birtist í tískublaði Morgunblaðsins fyrr í mánuðinum.

Hlýrri tónar, styttur og hreyfing, bæði í lit og klippingu, er að koma sterkt inn. Grái tónninn er að detta aðeins út og stelpur vilja mýkri tóna í auknum mæli, eins og beislitaða, hunangs- og ferskjutóna. Það er mikið flæði og ljómi sem myndast með þessum tónum,“ útskýrir Katrín. Katrín segir styttur í kringum andlitið vera að koma sterkar inn með hækkandi sól. „Já, beina línan í klippingum er að detta út. Með þessum styttum er auðveldara að gera fallegar krullur í hárið og það verður auðveldara að búa til lyftingu fyrir þær sem vilja það. Svo er „undercut“-klipping með mynstri að koma inn í sumar fyrir þær sem vilja fara alla leið.“ Fléttur hafa tröllriðið öllu undanfarið og þær verða áfram vinsælar að sögn Katrínar. Sömu sögu má segja um stóra liði og bylgjur. „Allt snýst um að vera með mjúka hreyfingu.“

Nauðsynlegt að gefa hárinu raka

„Fyrir herrana eru stuttar herraklippingar að koma aftur inn, smá 20’s-„look“ þykir enn flott og margir eru að stytta toppinn núna fyrir sumarið,“ segir Katrín aðspurð um hártískuna fyrir herra. Þá segir hún nauðsynlegt að hugsa sérstaklega vel um hárið í sumar og gefa því raka, þetta þurfa bæði konur og karlar að hafa í huga. „Olíur og „leave in“-næringar eru nauðsynlegar. Þegar við erum mikið úti í sólinni og að skreppa í sund þá er gott er að eiga hárvörur með UV-vörn og góða djúpnæringu,“ segir Katrín sem mælir með að fá ráð varðandi val á vörum hjá fagmanni.

Katrín Sif, einn eigandi Sprey.
Katrín Sif, einn eigandi Sprey.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál