Tískuspekúlantar rifu Clancy í sig

Stjörnur kvikmyndarinnar, Joanna Lumley og Jennifer Saunders, slógu á létta …
Stjörnur kvikmyndarinnar, Joanna Lumley og Jennifer Saunders, slógu á létta strengi. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Frumsýning kvikmyndarinnar Absolutely Fabulous fór fram í gær. Að sjálfsögðu mátti sjá strollu af sérlega smart og tískumeðvituðum einstaklingum þramma eftir rauða dreglinum, enda þættirnir sem kvikmyndin er byggð á ákaflega vinsælir.

Sumir þóttu þó betur klæddir en aðrir á frumsýningunni.

Fyrirsætan Abbey Clancey þótti slá feilnótu, en hún klæddist svörtum leðurkjól, skreyttum rennilás og belti. Á hinni risastóru beltissylgju mátti síðan lesa orðin „girl on a motorcycle“ með gulum stöfum.

Óhætt er að segja að múnderingin hafi ekki farið vel í tískuspekúlanta, líkt og sjá má á frétt Daily Mail.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem klæðnaður Clancy vekur eftirtekt, en á dögunum reif tískulöggan fyrirsætuna í sig fyrir að klæðast nælonsokkabuxum við opna skó.

Frétt Smartlands: Eru þetta verstu tískumistökin?

Tískusérfræðingar voru ekki hrifnir af útganginum á Clancy.
Tískusérfræðingar voru ekki hrifnir af útganginum á Clancy. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
Kjóll fyrirsætunnar þótti ekki mikið augnayndi.
Kjóll fyrirsætunnar þótti ekki mikið augnayndi. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
Ofurfyrirsætan Kate Moss lét sig ekki vanta, og Stella McCartney …
Ofurfyrirsætan Kate Moss lét sig ekki vanta, og Stella McCartney mætti galvösk á frumsýninguna. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál