Konur landsliðsmanna með dýran smekk

Eiginkonur, unnustur og kærustu landsliðsmanna kunna að klæða sig. Sumar …
Eiginkonur, unnustur og kærustu landsliðsmanna kunna að klæða sig. Sumar þeirra hafa fokdýran smekk. Ljósmynd/Instagram

Eiginkonur, kærustur og unnustur landsliðsmanna í knattspyrnu eru með fokdýran smekk ef marka má töskuval þeirra. Margar af þeim eiga töskur frá Chanel en þær kosta um hálfa milljón eða meira stykkið. 

Pattra S. eiginkona Theódórs Elmars Bjarnasonar er tískubloggari á Trendnet. Pattra er alltaf með nýjustu strauma og stefnur á hreinu. Hún skartaði svartri bólstraðri Chanel-tösku í Nice í Frakklandi. 

👁 #Nice

A photo posted by Pattra S (@trendpattra) on Jul 1, 2016 at 5:54am PDT

Fitnessdrottningin Kristbjörg Jónasdóttir, kærasta Arons Einars Gunnarssonar, á Boy Bag frá Chanel. Sú taska hefur verið ákaflega áberandi hjá bloggurum og áhrifakonum í tískuheiminum. 

Á myndinni hér fyrir neðan er hún í gallabuxum frá JÖR við og svartri rúllukragapeysu. 

Alexandra Helga Ívarsdóttir, kærasta Gylfa Sigurðssonar, er ákaflega hrifin af Chanel. Hún mætti með eina rauða á leikinn sem fór vel við bláu landsliðstreyjuna og svo á hún eina svarta líka sem hún hefur verið dugleg að nota. Alexandra Helga var þó ekki alltaf í bláu treyjunni heldur var stundum í hvítu. Að sjálfsögðu stendur G. Sigurðsson aftan á treyjunni hennar. 

Áfram Ísland ❤️🇮🇸 #euro2016

A photo posted by Alexandra Ivarsdottir (@alexandrahelga) on Jun 27, 2016 at 10:37am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál