Systurnar Gigi og Bella Hadid hafa í samstarfi við Urban Sophistication hafið sölu á sínum eigin varningi, línunni „Belgie.“ Línan samanstendur af bleikum peysum og stuttermabolum með myndum af systrunum sem Barbie-dúkkum.
Fyrir neðan myndina stendur síðan „Beige í sama letri og Barbie er skrifað. Gigi Hadid birti mynd af sér í peysunni á Instagram en undir henni stóð: „Það sem þú veist um Belgie-varninginn.“
Stjörnurnar í Hollywood hafa nú flestar hafið sölu á sínum eigin varningi líkt og Kanye West, Justin Bieber og Beyonce.