Fræg fyrirsæta í nýrri herferð 66°Norður

Emmu Leth er nýtt andlit 66°Norður.
Emmu Leth er nýtt andlit 66°Norður. mbl

Í nýjasta tímariti Eurowoman má sjá opnuauglýsingu frá 66°Norður þar sem nýtt andlit kemur fyrir sem er ekki kunnuglegt hér heima. Um er að ræða dönsku fyrirsætuna og leikkonuna, Emmu Leth, en hún er þekkt andlit í Danmörku og bregður reglulega fyrir í dönskum miðlum.

Leth hefur meðal annars prýtt forsíður Eurowoman, Elle og Cover. Hún er í auglýsingaherferð fyrir nýja vetrarlínu 66°Norður sem var skotin á Skálafelli síðasta vetur. Að auki má finna stutt viðtal við hana í blaðinu um upplifunina af tökunum hér á Íslandi. Þar segir Emma að það að hafa staðið úti í hvítri auðn hafi slegið hana aðeins út af laginu en samt á góðan hátt. Hún bætir við að venjulega þegar unnið er í svona miklu frosti standi fólk og frjósi nánast úr kulda en það hafi ekki verið í þessu tilfelli. Hún segist hafa verið mest til í að leika sér í snjónum. Vetrarlínan verður birt formlega í næstu viku. 

Emmu Leth á forsíðu Eurowoman.
Emmu Leth á forsíðu Eurowoman.
Emmu Leth á forsíðu ELLE.
Emmu Leth á forsíðu ELLE.
Emmu Leth á forsíðu Cover.
Emmu Leth á forsíðu Cover.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál