Smellubuxurnar komnar aftur

Kim Kardashian er þekkt fyrir skrautlegan stíl.
Kim Kardashian er þekkt fyrir skrautlegan stíl. Ljósmynd / skjáskot Mirror

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er tískufyrirmynd margra, en fötin sem hún klæðist hafa gríðarleg áhrif á kauphegðun heimsbyggðarinnar.

Um þessar mundir er stjarnan að spóka sig á tískuvikunni í París, þar sem hún sýnir sig og sér aðra, ásamt því að sitja á fremsta bekk fjölmargra tískusýninga.

Dress sem stjarnan klæddist í gær hefur vakið töluverða athygli en svo virðist vera sem hún sé að reyna að endurvekja forna frægð smellubuxnanna, sem voru gríðarlega vinsælar á tíunda áratugnum hér á landi.

Eins og það sé ekki nóg, þá klæddist Kardashian þröngri blúndusamfellu við, netasokkabuxum, og háhæluðum skóm.

Hjónakornin spókuðu sig um götur Parísar.
Hjónakornin spókuðu sig um götur Parísar. Ljósmynd / skjáskot Mirror
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál