Klæddist 1,4 milljóna króna gullkjól

Barack Obama og Michelle Obama flissuðu saman á meðan þau …
Barack Obama og Michelle Obama flissuðu saman á meðan þau biðu eftir forsætisráðherra Ítalíu, Matteo Renzi, og eiginkonu hans, Agnese Landini. AFP

Forsetafrú Bandaríkjanna, Michella Obama, var aðalnúmerið í Hvíta húsinu á þriðjudaginn þegar hún og eiginmaður hennar tóku á móti forsætisráðherra Ítalíu, Matteo Renzi, og eiginkonu hans. Michelle klæddist sérsaumuðum og skósíðum gullkjól frá Atelier Versace sem metinn er á upphæð sem nemur 1,4 milljónum króna er fram kemur á vef Daily Mail.

Kjóll Michelle vakti svo sannarlega lukku enda er hann einstaklega flottur í sniðinu. Michelle var með hárið slegið og skartaði látlausri förðun þetta kvöldið sem tryggði að kjóllinn naut sín afar vel.

Kjóllinn sem Michelle Obama klæddist er engin smásmíði.
Kjóllinn sem Michelle Obama klæddist er engin smásmíði. AFP
Michelle Obama leit stórvel út í kjólnum sem kemur frá …
Michelle Obama leit stórvel út í kjólnum sem kemur frá Versace. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál