Kjólar Michelle Obama í gegnum tíðina

Í maí kaus Obama að klæðast kampavínslituðum Naeem Khan-kjól. Sigurður …
Í maí kaus Obama að klæðast kampavínslituðum Naeem Khan-kjól. Sigurður Ingi Jóhannsson og eiginkona hans Ingibjörg Elsa Ingjaldsdóttir tóku sig líka vel út þar sem þau stilltu sér upp við hlið forsetahjónanna. AFP

Fráfarandi forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama, er sérlega glæsileg kona og klæðaburður hennar vekur gjarnan eftirtekt enda vandaður og fallegur.

Vefurinn Cosmopolitan tók saman flottustu kjólana sem Obama hefur klæðst í gegnum tíðina, en líkt og sjá má eru þeir ekkert slor.

Á fyrsta opinbera kvöldverðinum í Hvíta húsinu, árið 2009, klæddist …
Á fyrsta opinbera kvöldverðinum í Hvíta húsinu, árið 2009, klæddist forsetafrúin síðkjól frá hönnuðinum Naeem Khan. Líkt og sjá má var Obama bálskotinn í sinni konu. Ljósmynd / skjáskot Cosmopolitan
Árið 2010 geislaði Obama í kóngabláum kjól frá Peter Soronen.
Árið 2010 geislaði Obama í kóngabláum kjól frá Peter Soronen. Ljósmynd / skjáskot Cosmopolitan
Í janúar 2011 kaus forsetafrúin að klæðast eldrauðum kjól úr …
Í janúar 2011 kaus forsetafrúin að klæðast eldrauðum kjól úr smiðju Alexander McQueen. Ljósmynd / skjáskot Cosmopolitan
Obama geislaði í hvítum, perluskreyttum kjól úr smiðju Naeem Khan …
Obama geislaði í hvítum, perluskreyttum kjól úr smiðju Naeem Khan í júní 2011. Ljósmynd / Cosmopolitan
Obama leit stórkostlega út í purpuralitum síðkjól úr smiðju Doo-Ri …
Obama leit stórkostlega út í purpuralitum síðkjól úr smiðju Doo-Ri Chung, en við kjólinn bar hún fallega, gyllta skartgripi. Ljósmynd / Cosmopolitan
Árið 2012 var það ekki blái kjóllinn úr smiðju Marchesa …
Árið 2012 var það ekki blái kjóllinn úr smiðju Marchesa sem stal senunni, heldur forláta hálsmen frá Tom Binns. Ljósmynd / Cosmopolitan
Fjólublár fer Obama vel, en í fyrra klæddist hún síðkjól …
Fjólublár fer Obama vel, en í fyrra klæddist hún síðkjól úr smiðju Tadashi Shoji sem var stórglæsilegur. Ljósmynd / skjáskot Cosmopolitan
Forsetinn var augljóslega ánægður með sína konu þegar hún klæddist …
Forsetinn var augljóslega ánægður með sína konu þegar hún klæddist forláta síðkjól úr smiðju Veru Wang. Ljósmynd / skjáskot Cosmopolitan
Hlýralausi kjóllinn úr smiðju Jason Wu fór forsetafrúnni einstaklega vel.
Hlýralausi kjóllinn úr smiðju Jason Wu fór forsetafrúnni einstaklega vel. Ljósmynd / Cosmopolitan
Bráðum verður gengið til kosninga og kvöldverðirnir í Hvíta húsinu …
Bráðum verður gengið til kosninga og kvöldverðirnir í Hvíta húsinu verða ekki mikið fleiri. Obama kaus því að hætta með stæl og klæddist rósagylltum kjól úr smiðju Versace á dögunum. Kjóllinn var að sjálfsögðu algert augnayndi. Ljósmynd / skjáskot Cosmopolitan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál