Victoria Beckham sendir frá sér hræódýra línu

Victoria Beckham ætlar að senda frá sér tískulínu í samstarfi …
Victoria Beckham ætlar að senda frá sér tískulínu í samstarfi við lággjaldaverslunina Target. AFP

Tískudrottningin Victoria Beckham hefur gefið út að von sé á nýrri kvenfata- og barnalínu, en hún hefur tekið höndum saman með lággjaldaversluninni Target.

Tíðindin komu mörgum í opna skjöldu, en flíkur Beckham hafa hingað til kostað skildinginn og ekki verið á færi hvers sem er að fjárfesta í þeim.

Flíkurnar í nýju línunni munu kosta á bilinu sex til 70 dollara, eða 700 til 8.000 krónur.

„Um nokkra hríð hef ég hugleitt hversu frábært það væri að hanna línu fyrir viðskiptavini sem annað hvort vilja ekki, eða geta ekki, greitt fyrir hátískuvörur,“ sagði Beckham í viðtali við Target.

„Að hanna fyrir börn er eitthvað sem mig hefur lengi langað að gera, þannig að ég var mjög spennt að fá að hafa þau með í línunni. Ég held að fötin endurspegli það hversu mikið ég skemmti mér við að hanna þau.“

Beckham þykir ein best klædda kona heims.
Beckham þykir ein best klædda kona heims. Ljósmynd / skjáskot Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál