Tískufyrirmyndin Paris Hilton

Katrín klæddist samskonar kjól og Paris Hilton hafði gert nokkrum …
Katrín klæddist samskonar kjól og Paris Hilton hafði gert nokkrum dögum áður. Ljósmynd / skjáskot People

Paris Hilton hefur heldur betur sett svip sinn á tískuna, en undanfarna daga hefur fjöldinn allur af stórstjörnum tekið klæðaburð hennar til fyrirmyndar og fetað í fótspor hennar.

Eins og sjá má eru kjólarnir ansi keimlíkir.
Eins og sjá má eru kjólarnir ansi keimlíkir. Ljósmynd / skjáskot People

Á miðvikudaginn hélt Kendall Jenner upp á 21 árs afmæli sitt, en hún klæddist sérsaumuðum kjól eftir tískuhönnuðinn Antoine Salameh sem hannar undir merkinu LaBourjoisie. Jenner sótti innblástur í kjól sem Hilton klæddist á 21 árs afmælinu sínu, en þeir eru nánast alveg eins.

Hilton klæddist gyllta kjólnum í sumar, Underwood klæddist sínum í …
Hilton klæddist gyllta kjólnum í sumar, Underwood klæddist sínum í vikunni. Ljósmynd / skjáskot People

Á miðvikudaginn voru Kántrýtónlistarverðlaunin veitt, og var Carrie Underwood kynnir. Hún klæddist feikimörgum kjólum á hátíðinni, og var einn fagurlega gylltur. Og viti menn, Hilton hafði klæðst samskonar kjól í júlí síðastliðnum.

Paris Hilton og Katrín virðast hafa svipaðan smekk.
Paris Hilton og Katrín virðast hafa svipaðan smekk. Ljósmynd / skjáskot People

Á dögunum skellti hótelerfinginn sér á amfAR Inspiration Gala-ballið í Los Angeles, þar sem hún klæddist hvítum síðkjól. Og viti menn, sjálf Katrín hertogaynja af Cambridge sást spóka sig um í samskonar kjól nokkrum dögum síðar.

Og það er ekki allt. Hilton klæddi sig að sjálfsögðu upp á hrekkjavökunni og kaus að bregða sér í hlutverk Lísu í Undralandi. Haldið þið ekki að móðir Kendall Jenner, sjálf Kris Jenner, hafi gert slíkt hið sama.

Það er greinilegt að Paris Hilton hefur engu gleymt.

Frétt People

Annar meðlimur Kardashian / Jenner fjölskyldunnar, sjálf Kris Jenner, klæddist …
Annar meðlimur Kardashian / Jenner fjölskyldunnar, sjálf Kris Jenner, klæddist svipuðum búning og Hilton á hrekkjavöku. Ljósmynd / skjáskot People
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál