Dónaleg augnförðun ryður sér til rúms

Typpaförðun virðist vera nýjasta nýtt í tískuheiminum.
Typpaförðun virðist vera nýjasta nýtt í tískuheiminum. Ljósmynd / skjáskot Twitter

Ný og stórundarleg tískubylgja virðist vera að ryðja sér til rúms, en stúlkur eru í stórum stíl farnar að teikna typpi framan í sig.

Tískubylgjan átti upptök sín á Twitter, en ung stúlka ákvað að skreyta augnlok sín með getnaðarlim og deila herlegheitunum með fylgjendum sínum.

Myndin fór fljótt á flug, og virðast limirnir falla vel í kramið hjá ungum konum sem hafa gaman að förðun.

Hvort jóla- eða áramótaförðuninni sé hér með reddað verður tíminn síðan að leiða í ljós.

Frétt Self






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál