Hinn árlegi stórviðburður í tískuheiminum, Victoria Secret-tískusýningin, nálgast nú óðum en sýningin fer fram mánudaginn 5. desember.
Sýningin fer fram í París að þessu sinni en það er í fyrsta skiptið sem sýningin er haldin í tískuborginni.
Tvær þekktar Victoria Secret-fyrirsætur komust ekki í hóp englanna þetta árið en það eru þær Candice Swanepoel og Behati Prinsloo en báðar hafa þær tekið þátt í sýningunni frá því árið 2007. Stutt er síðan þær eignuðust sín fyrstu börn sem útskýrir fjarveru þeirra.
Bestu vinkonurnar og fyrirsæturnar þær Kendall Jenner og Gigi Hadid ganga hins vegar báðar pallinn í ár en þær tóku þátt í sinni fyrstu sýningu fyrir undirfatamerkið í fyrra.
Búast má við stórkostlegri sýningu og glæsilegum tónlistaratriðum eins og undanfarin ár.