Eru stoppuð úti á götu vegna fegurðar sinnar

Parið Mel Tansley og James Ferguson hafa bæði keppti í …
Parið Mel Tansley og James Ferguson hafa bæði keppti í fegurð. Skjáskot af Instagram

Parið Mel Tansley og James Ferguson frá Essex virðist vera með sjálfstraustið í lagi en þau segjast oft vera stoppuð úti á götu vegna fegurðar sinnar.

Tansley, sem er 21 árs, og Ferguson, 29 ára, hittust fyrir 18 mánuðum í myndatöku og hafa verið óaðskiljanleg síðan þá. Nú eru þau trúlofuð og gera allt saman. Parið er á ströngu prógrammi til að viðhalda útliti sínu en þau fara t.d. sjö sinnum í viku í ræktina, bera á sig brúnkukrem, hvítta tennurnar og fara í litun og plokkun saman.

Tansley og Ferguson sögðu frá lífi sínu í viðtali við Mail Online fyrir skömmu. Þar kom fram að þau eru reglulega stoppuð af ókunnugum vegna þess að þau eru svo fögur. „Við James reynum að tryggja að við lítum alltaf sem best út. Við förum í ræktina á hverju kvöldi og erum alltaf tilbúin í myndatökur,“ segir Tansley. Bæði hafa þau tekið þátt í fegurðarsamkeppnum og náð langt í þeim.

Parið ætlar svo að ganga í það heilaga árið 2018. „Það er margt til að hlakka til og við erum svo þakklát fyrir að hafa fundið hvort annað.“

Day 1- exploring the side streets of Venice💕... We love a selfie! Sorry not sorry

A photo posted by Melissa Tansley (@meltansley) on Jul 8, 2016 at 8:45am PDT

When you can hold something that means everything to you in your arms you know your never letting go @meltansley #fiancé #myworld #mrworld #mrworld2016 #mymissworld #themwclassic #mwclassic #couplegoals #lifegoals #dropdeadgorgeous #beautiful #fitness #model #models #fitnessmodel #fashionmodel #catwalk #winner #overallwinner #winning #fitfam #modelling

A photo posted by James Ferguson - 💍 (@jamesf_fitnessmodel) on Nov 21, 2016 at 8:19am PST

Parið leggur mikið á sig til að viðhalda útlitinu.
Parið leggur mikið á sig til að viðhalda útlitinu. Skjáskot af Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál