Fólk hraunar óspart yfir útlit hennar

Föli varaliturinn hefur ekki hitt í mark.
Föli varaliturinn hefur ekki hitt í mark. Skjáskot af Daily Mail

Claudia Winkleman, einn kynnir þáttanna Strictly Come Dancing sem sýndir eru á BBC, hefur fengið það óþvegið undanfarið fyrir ljótan klæðaburð og slæma förðun. Margt fólk hefur hellt sér yfir hana á samfélagsmiðlum og flestir sem látið hafa í sér heyra virðast þola varalit hennar illa.

„Varirnar þínar ættu ekki að vera fölari en andlitið á þér,“ sagði einhver á Twitter en Winkleman er þekkt fyrir að nota mikið brúnkukrem og fölan varalit. Þetta er bara eitt dæmi af mörgum. „Af hverju krefst Claudia Winkleman þess að nota þennan litlausa varalit?“

Ekki nóg með að fólk hrauni yfir förðunina þá hefur fólk líka drullað óspart yfir klæðaval hennar. Hvíta kjólnum sem hún klæddist á dögunum hefur þá verið margoft líkt við heklaða klósettrúllu-hlíf.

Claudia Winkleman klæddist þessum kjól á dögunum og fólk var …
Claudia Winkleman klæddist þessum kjól á dögunum og fólk var ekki hrifið. Skjáskot af Daily Mail
Claudia Winkleman er alltaf með dökka augnförðun, gervibrúnku og fölan …
Claudia Winkleman er alltaf með dökka augnförðun, gervibrúnku og fölan varalit. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál