Stal senunni í glitrandi þröngum kjól

Leikkonan Nicole Kidman stal senunni í gær.
Leikkonan Nicole Kidman stal senunni í gær. AFP

Leikkonan Nicole Kidman var aðalnúmerið á viðburði í gær þar sem nýju dagatali var fagnað. Ljósmyndirnar í umræddu dagatali eru eftir ljósmyndarann Peter Lind­bergh og fyrirsæturnar eru ómálaðar Hollywood-leikkonur. Kidman vakti mikla lukku í silfurlituðum glimmerkjól sem kemur frá Armani Privé.

Viðburðurinn, sem haldinn var í París, var hinn glæsilegasti og allir mættu í sínu fínasta pússi en Kidman tókst samt að stela senunni. Hin 49 ára Kidman, sem er ein stjarna dagatalsins, tók sig einstaklega vel út í Armani-kjólnum sem er opinn í bakið, gólfsíður og þröngur. Kjóllinn kemur úr haustlínu tískuhússins.

Frétt mbl.is: Fræg­ustu leik­kon­urn­ar án farða

Nicole Kidman ásamt þýska ljósmyndaranum Peter Lindbergh.
Nicole Kidman ásamt þýska ljósmyndaranum Peter Lindbergh. AFP
Ítalska fyrirsætan Afef Jnifen, leikkonan Nicole Kidman og Peter Lindbergh …
Ítalska fyrirsætan Afef Jnifen, leikkonan Nicole Kidman og Peter Lindbergh settu sig í stellingar á rauða dreglinum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál