Tískubloggari heldur fatauppboð

Hægt verður að bjóða í glæsilegar flíkur á uppboðinu.
Hægt verður að bjóða í glæsilegar flíkur á uppboðinu.

„Ég ætla að skella í eitt lauflétt fatauppboð,“segir tískubloggarinn Hrefna Dan á facebook sem ætlar að breyta út af vananum í þetta skiptið en hún er vön að hafa fatasölu á Akranesi þar sem hún er búsett. Segir hún þetta fyrirkomulag gefa fleirum tækifæri á að versla hjá sér.
Uppboðið stendur frá fimmtudeginum 12. febrúar til sunnudagsins 15. febrúar. „Eina reglan er að bjóða 100 krónum hærra en síðasta boð.“
Hrefna verður með eitt og annað til sölu á uppboðinu samanber yfirhafnir, skó, peysur, kjóla, boli og margt fleira. Áhugasamir geta skoðað viðburðinn nánar Fatauppboð Hrefnu Dan

Hrefna sem bættist nýverið í glæsilegan hóp bloggara á www.trendnet.is var í skemmtilegu viðtali hjá okkur rétt fyrir jólin um stíl, góð kaup og margt fleira en viðtalið má sjá hér: Elskar flíkur með sál og sögu

Hrefna Dan ætlar að breyta út af vananum og halda …
Hrefna Dan ætlar að breyta út af vananum og halda fatauppboð en hún er vön að halda fatasölu reglulega.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál