Sundfatamódel á sjötugsaldri

Rossi lítur stórkostlega vel út.
Rossi lítur stórkostlega vel út. Skjáskot / Bored Panda

Yasemeenah Rossi er 61 árs, en hún situr fyrir í auglýsingum hjá fyrirtækinu The Dreslyn, þar sem hún auglýsir sundföt.

Eigandi The Dreslyn, Brooke Taylor Corsia, greindi frá því að hún vildi ekki notast við auglýsingar þar sem konur eru kyngerðar um of og hafi hún því valið Rossi, sem geislar af heilbrigði og sjálfsöryggi.

Ljósmyndirnar eru sérlega fallegar, en Rossi hugsar augljóslega sérlega vel um sig.

„Það er ekkert stórt leyndarmál að baki útliti mínu,“ sagði Rossi eitt sinn í viðtali. „Allt sem ég hef gert er að borða lífrænan mat, löngu áður en það komst í tísku.“

„Ég nota olíu á húðina, og í hárið. Ég skrúbba húðina einu sinni í viku upp úr olíu og sínum sykri og borða eina lárperu á dag auk þess sem ég borða lífrænt kjöt og fisk.“

Frétt Bored Panda

Myndirnar eru sérlega fallegar.
Myndirnar eru sérlega fallegar. Skjáskot / Bored Panda
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál