Stal senunni á rauða dreglinum

Jennifer Lopez átti stjörnuleik á rauða dreglinum í gær.
Jennifer Lopez átti stjörnuleik á rauða dreglinum í gær. AFP

People’s Choice Awards fóru fram í Microsoft-leikhúsinu í Los Angeles í nótt og er óhætt að segja að öllu hafi verið til tjaldað.

Glæsileikinn á rauða dreglinum var mikill en óvænta ánægjan var sú að kvenkyns stjörnurnar klæddust kjólum af öllum gerðum, litum og sniðum. Mátti þá einnig sjá samfestinga og buxnadragtir.

Jennifer Lopez, ókrýnd drottning rauða dregilsins olli engum vonbrigðum með kjólavali sínu í gær en hún klæddist guðdómlegum svörtum kjól sem fór henni einstaklega vel. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var kjóllinn einnig skreyttur demöntum, sem og hún sjálf.

Lopez stal ekki bara senunni á dreglinum heldur vann hún sín fyrstu People’s Choice-verðlaun en hún hlaut þau fyrir hlutverk sitt í þáttunum Shades of Blue. Hélt leik- og söngkonan einlæga ræðu og þakkaði spænskum aðdáendum sínum sérstaklega.

Sarah Jessica Parker mætti í þessum skvísulega kjól á verðlaunahátíðina.
Sarah Jessica Parker mætti í þessum skvísulega kjól á verðlaunahátíðina. AFP
Actress Kristen Bell var algjör töffari og mætti í samfesting …
Actress Kristen Bell var algjör töffari og mætti í samfesting á verðlaunahátíðina. AFP
Leikkonan Andrea Navedo geislaði í gulum kjól.
Leikkonan Andrea Navedo geislaði í gulum kjól. AFP
Hin gullfallega Priyanka Chopra klæddist laxableikum kjól sem fór vel …
Hin gullfallega Priyanka Chopra klæddist laxableikum kjól sem fór vel við dökkt hörund hennar. AFP
Þokkagyðjan Sofia Vergara klæddist hvítu og gulli.
Þokkagyðjan Sofia Vergara klæddist hvítu og gulli. AFP
Leikkonan Blake Lively mætti í rokkuðum kjól með kögri og …
Leikkonan Blake Lively mætti í rokkuðum kjól með kögri og sýndi leggina. AFP
Sjarmatröllið Melissa McCarthy sló á létta strengi eins og henni …
Sjarmatröllið Melissa McCarthy sló á létta strengi eins og henni einnig er lagið. AFP
Jennifer Lopez stal senunni í þessum stórglæsilega kjól.
Jennifer Lopez stal senunni í þessum stórglæsilega kjól. AFP
Ofurparið Ellen Degeneres og Portia De Rossi pose voru innilegar …
Ofurparið Ellen Degeneres og Portia De Rossi pose voru innilegar og flottar á dreglinum. AFP
Jada Pinkett Smith alltaf jafn glæsileg!
Jada Pinkett Smith alltaf jafn glæsileg! AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál