Nú mega lokkarnir fjúka

Khloe Kardashian en ein þeirra sem klippir hár sitt reglulega …
Khloe Kardashian en ein þeirra sem klippir hár sitt reglulega í axlarsídd og klæðir það hana afar vel. AFP

Tískuspekúlantar vilja meina að stutt og heilbrigt hár verði það allra heitasta í hártískunni árið 2017. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hafa stjörnurnar lagt línurnar að undanförnu. Einnig verða náttúrulegir hárlitir áberandi og eða heillitir. Samkvæmt www.elle.com sem spáir í komandi strauma verður bæði rennislétt hár áberandi sem og liðað og þá eru liðirnir látnir líta út fyrir að vera sem náttúrulegastir þó svo að þeir séu gerðir með hjálp alls kyns krullujárna.

Leikkonan Olivia Munn er hér með afar heilbrigt og fallegt …
Leikkonan Olivia Munn er hér með afar heilbrigt og fallegt hár í axlarsídd. Hárið er örlítið liðað og í djúpum dökkum lit. Pinterest
Það var skemmtileg tilbreyting að sjá Kim Kardashian með þessa …
Það var skemmtileg tilbreyting að sjá Kim Kardashian með þessa sídd af hári en hún er yfirleitt með mjög sítt hár. Klippingin flotta gerði hana svolítið fágaða. Pinterest
Emilia Clarke er hér með afslappaða útgáfu að þessari klippingu. …
Emilia Clarke er hér með afslappaða útgáfu að þessari klippingu. Liturinn er úr sér vaxinn og lokkarnir frjáslegir. Engu að síður klæðir þetta útlit hana mjög vel. Pinterest
Gabrielle Union er hér með óaðfinnanlega útfærslu af axlarsíðu hári. …
Gabrielle Union er hér með óaðfinnanlega útfærslu af axlarsíðu hári. Vel blásnu, sléttu og glansandi. Klippingin fer leikkonunni afar vel. Pinterest





mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál