Þetta þarft þú að eiga í fataskápnum

Gallaskyrta er nánast skyldueign en hana má nota við svo …
Gallaskyrta er nánast skyldueign en hana má nota við svo mörg tilefni, bæði við kósý buxurnar, sem og yfir leðurbuxur og hæla. Flott er að hafa hana ekki of þrönga.

Oft og tíðum freistast maður til að kaupa sér fallegar flíkur sem heilla augað en hafa kannski ekkert sérstakt notagildi. Mikilvægt er að eiga góðan grunn af fallegum og klassískum flíkum sem má svo jafnvel klæða upp og leika sér svolítið með. Svo er auðvitað nauðsynlegt að kaupa sér eitthvað óskynsamlegt af og til.

Þessir efripartar eru gott dæmi um flíkur sem gott er að eiga í skápnum og í flestum tilfellum má gera meira úr með skarti, jökkum eða öðru.

Hvít falleg mussa getur nýst bæði á góðviðrisdögum við sandala …
Hvít falleg mussa getur nýst bæði á góðviðrisdögum við sandala og stuttbuxur sem og yfir fallegar vinnubuxur og hælaskó. Einnig er smart að skreyta hana með grófum og síðum hálsmenum.
Þessi einstaklega fallegi litur á blússu er afa elegant en …
Þessi einstaklega fallegi litur á blússu er afa elegant en sem dæmi gengur þessi bæði til vinnu sem og fínna, hún gæti verið mjög flott girt ofan í fallegt leðurpils sem og flott undir stórri grófri peysu. Þessi litur verður áberandi í sumar.
Klassísk kimono-blússa er eitthvað sem gaman er að eiga og …
Klassísk kimono-blússa er eitthvað sem gaman er að eiga og endist alla ævi. Ef þú vilt vera örlítið örðuvísi og ofsalega fín er alltaf gaman að skarta fallegri kimono-blússu.
Ein sumarleg og klassísk sem gæti verið flott bæði við …
Ein sumarleg og klassísk sem gæti verið flott bæði við þröngar gallabuxur og skvísuskó en einnig gallastuttbuxur eða pils á heitari degi.
Þessa flík er einfaldega nauðsynlegt að eiga í skápnum. Hvítur …
Þessa flík er einfaldega nauðsynlegt að eiga í skápnum. Hvítur bolur gengur við allt, pils, buxur, heimabuxurnar, leggings, undir dragtjakkann, peysuna, já bara allt.
Falleg angúrúpeysa er eitthvað sem gaman er að eiga og …
Falleg angúrúpeysa er eitthvað sem gaman er að eiga og gengur alltaf.
Skemmtileg flík sem gerir mikið fyrir línurnar, sem er flott …
Skemmtileg flík sem gerir mikið fyrir línurnar, sem er flott bæði við buxur og pils.
Svartu sparilegur hlýratoppur nýtist vel bæði undir sparilega jakka sem …
Svartu sparilegur hlýratoppur nýtist vel bæði undir sparilega jakka sem og á sumardegi eða þegar kíkt er út við betri tilefni.











mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál