Geislaði í Gucci-slopp

Söngkonan, eiginmaður hennar og dóttir þeirra skelltu sér á körfuboltaleik.
Söngkonan, eiginmaður hennar og dóttir þeirra skelltu sér á körfuboltaleik. AFP

Poppdrottningin Beyoncé setti allt á hliðina þegar hún tilkynnti að hún ætti von á tvíburum fyrir skemmstu. Síðan þá hefur hún verið dugleg að birta myndir af bumbunni, auk þess sem hún sýndi blómlegan kviðinn á Grammy-verðlaununum á dögunum.

Óléttustíll söngkonunnar er sérlega glæsilegur, og eflaust eitthvað sem marga dreymir um að leika eftir. Þá skartaði hún skrautlegum kimono frá ítalska tískuhúsinu Gucci þegar hún skellti sér á körfuboltaleik með fjölskyldunni um helgina.

Innan undir klæddist hún síðan einföldum hvítum stuttermabol og rifnum gallabuxum.

Hér sést flíkin betur.
Hér sést flíkin betur. AFP
Söngkonan er síður en svo að reyna að klæða kúluna …
Söngkonan er síður en svo að reyna að klæða kúluna af sér. AFP
Beyoncé tróð upp á Grammy-verðlaununum, og fékk kúlan að njóta …
Beyoncé tróð upp á Grammy-verðlaununum, og fékk kúlan að njóta sín. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál