Leikkonan Jennifer Aniston var ákaflega fallega klædd í gærkvöldi þegar Óskarsverðalaunin voru afhent. Hún klæddist svörtum síðum pallíettuskreyttum kjól með hárri klauf.
Kjóllinn kemur frá ítalska tískuhúsinu Atelier Versace og er vel fleginn en þó ekki þannig að barmurinn poppi út úr.
Við kjólinn var hún í svörtum látlausum bandaskóm sem voru aðeins með bandi yfir ristina.