Kidman breytti bakinu á kjólnum

Nicole Kidman breytti böndunum á kjólnum.
Nicole Kidman breytti böndunum á kjólnum. Ljósmynd/Samsett

Leikkonan Nicole Kidman, sem var afar ástfangin á rauða dregli Óskarsins, breytti böndunum á síðkjólnum þegar í eftirpartíið var komið. 

Kjóllinn er glæsilegur en hann er frá Armani Privé. Þegar hún mætti var hún með böndin krossuð fyrir aftan bak en þegar líða tók á kvöldið var hún búin að binda böndin um hálsinn á sér. 

Ekki er vitað hvort böndin hafi slitnað og því hafi hún brugðið á þetta ráð eða hvort kjóllinn sé einfaldlega svona tæknilegur. 

Sama hvað gerðist má þessi kjóll eiga það, að hann er guðdómlegur á hvorn veginn sem er. 

Nicole Kidman.
Nicole Kidman. mbl.is/AFP
Nicole Kidman.
Nicole Kidman. mbl.is/AFP
Hjónin Keith Urban og Nicole Kidman.
Hjónin Keith Urban og Nicole Kidman. Frazer Harrison
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál