Eftir að Barack Obama lauk störfum sem forseti Bandaríkjanna þarf hann ekki að vera jafnoft í jakkafötum. Nýlega náðust myndir af honum þar sem hann gæti hafa gengið beint út af tískupöllunum í Mílanó.
Obama hefur áður sést í gallabuxum en þær hafa verið í töluvert öðruvísi stíl, bæði ljósar og gamaldags eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Nú er eins og Obama hafi fengið sér stílista og hefur hann sést í dökkum gallabuxum. Við buxurnar klæðist hann síðan fallegum brúnum leðurjakka.