Klæðnaður Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur sjónvarpskonu í Söngvakeppninni hefur vakið mikil viðbrögð á samfélagsmiðlum. Ragnhildur Steinunn er ekki bara kynnir keppninnar heldur er hún efnislegur ritstjóri hennar.
Skiptar skoðanir eru á því hvort fötin sem hún klæddist tvö síðustu laugardagskvöld séu í lagi eða ekki.
Í síðustu viku klæddist Ragnhildur Steinunn pallíettutopp með berri öxl og röndóttum hvítum buxum. Einhverjir höfðu orð á því að buxurnar hefðu verið eins og náttföt og að pallíettuefnið hefði mátt halda áfram og mynda frekar kjól. En auðvitað er smekkur fólks misjafn.
Í gærkvöldi klæddist Ragnhildur Steinunn samfestingi sem saumaður var af Elmu Bjarneyju Guðmundsdóttur. Það sem vekur athygli er að samfestingurinn er nákvæm eftirmynd af samfestingi sem sást í vor- og sumarlínu Balmain 2017. Nema að sá samfestingur var gullappelsínugulur með örlítið styttri ermum og aðeins öðruvísi belti. En hugmyndirnar eru ákaflega líkar. Allir sem vinna skapandi störf vita að hugmyndir ferðast en það sem er óheppilegt er að vor- og sumarlína Balmain var kynnt í september á síðasta ári.