Pharrell Williams auglýsir Chanel-töskur

Pharrel Williams auglýsir handtöskur.
Pharrel Williams auglýsir handtöskur. ljósmynd/Chanel

Tónlistarmaðurinn Pharrell Williams er fyrsti maðurinn til þess að sitja fyrir í handtöskuauglýsingu fyrir Chanel. Samkvæmt Harper's Bazaar segir Karl Lagerfeld, listrænn stjórnandi Chanel, að karlmenn geti líka notað töskuna.

Tónlistarmaðurinn sem hefur áður komið fram í auglýsingum og gengið tískupallana fyrir Chanel hefur verið að prófað sig áfram með kvenmannsfylgihluti. Nú gengur hann reglulega um með Gabrielle-töskuna í krókódílaleðri. „Fyrst þegar byrjaði að nota hana var ég ekki með neitt í henni. Ég var bara svo spenntur að vera með hana. En nú nota ég hana fyrir símann minn og aðra smáhluti,“ sagði Williams. 

Pharrell Williams.
Pharrell Williams. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál