Hannar föt undir 8.000 krónum

Victoria Beckham er farsæll fatahönnuður.
Victoria Beckham er farsæll fatahönnuður. mbl.is/AFP

Fatahönnuðurinn Victoria Beckham hannaði fatalínu fyrir Target. Beckham hefur notið mikilla vinsælda fyrir hönnun sína undanfarin ár. Margar konur hafa þó þurft að neita sér um fatnað Beckham enda er hún ekki þekkt fyrir ódýra kjóla. 

Nú hefur rofað til en Beckham fór í samstarf við bandarísku fatakeðjuna Target og er búin að hanna fatalínu á konur og börn. 

Úr línu Victoriu Beckham fyrir Target.
Úr línu Victoriu Beckham fyrir Target. Ljósmynd/Target

Þetta er í fyrsta skipti sem Beckham hannar fyrir börn. „Ég veit hvaða efni börn elska af því ég er búin að vera að klæða þau lengi,“ sagði Beckham í viðtali við Vogue. „Ég nota það sem ég lærði verandi móðir.“

Línan kemur í Target-búðir 9. apríl og á heimasíðu Victoriu Beckham. 

Úr línu Victoriu Beckham fyrir Target.
Úr línu Victoriu Beckham fyrir Target. Ljósmynd/Target
Úr línu Victoriu Beckham fyrir Target.
Úr línu Victoriu Beckham fyrir Target. Ljósmynd/Target
Úr línu Victoriu Beckham fyrir Target.
Úr línu Victoriu Beckham fyrir Target. Ljósmynd/Target
Úr línu Victoriu Beckham fyrir Target.
Úr línu Victoriu Beckham fyrir Target. Ljósmynd/Target
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál