Katrín klæðir sig eins og gömlu konurnar

Katrín klæðir sig ekki eins og 35 ára gömul kona.
Katrín klæðir sig ekki eins og 35 ára gömul kona. mbl.is/AFP

Katrín hertogaynja af Cambridge mætti ef til vill taka meiri áhættu í fatavalinu en þegar rýnt er í fatastíl kvenna í konungsfjölskyldunni virðist hún hafa nákvæmlega sama stíl og þær sem eru að minnsta kosti 30 árum eldri en hún.

Daily Mail fór yfir fataskápinn hjá Katrínu sem klæðir sig ekki eins og venjuleg 35 ára kona. Stílistar segja Katrínu mögulega vanta meira sjálfsöryggi þegar kemur að tísku. 

Katrín og Camilla, eiginkona Karls Bretaprins, sáust báðar í keimlíkum grænum kjólum fyrir skömmu. 

skjáskot/Daily Mail
skjáskot/Daily Mail

Katrín sést iðulega í mjög settlegum yfirhöfnum og verður að segjast að græna kápan hennar Katrínar sé frekar lík þeirri sem Anna prinsessa á. 

mbl.is/AFP
skjáskot/Daily Mail

Katrín er 31 ári yngri en Anna prinsessa en samt mætti halda að fötin þeirra kæmu úr sama fataskápnum. 

skjáskot/Daily Mail
skjáskot/Daily Mail

Gulu kápurnar sem Katrín og Camilla eiga eru einlitar og stílhreinar í sniðinu. 

skjáskot/Daily Mail
skjáskot/Daily Mail






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál