Þú munt ekki komast í gegnum sumarið nema eiga alla vega eina hettupeysu. Stóru merkin á borð við Calvin Klein, Fila og Kenzo hafa gert joggingpeysur eftirsóknarverðar. Nú bætast við fleiri merki sem eru með puttana á púlsinum.
Eitt það svalasta sem búið hefur verið til upp á síðkastið er bleika Ellingsen-hettupeysan. Hún kom á markað á dögunum og hefur notið mikilla vinsælda hjá báðum kynjum. Hettupeysan er svöl við rifnar gallabuxur en líka við ræktarföt og hún er alls ekki bara fyrir unga fólkið. Miðaldra konur eru æðislegar í bleikri Ellingsen-peysu enda gerir hún sama gagn og hrukkukrem – hún yngir upp!