Er hægt að losna við þennan svip?

mbl.is/ThinkstockPhotos

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Dea Medica svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér er hún spurð út í hyaluronic-sýru í munnvikum. 

Hæ Þórdís, 

Ég er mikið að velta fyrir mér hyaluronic-sýru í munnvik. Hvernig virkar það og hvað kostar svoleiðis? Kær kveðja, 

Gunna

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir í Dea Medica.
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir í Dea Medica. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sæl og takk fyrir spurninguna.

Þegar við eldumst þá fáum við þennan „ómöguleika-svip“, þegar munnvikin togast niður á við. Ef við erum ósátt við þessi niðurdregnu munnvik og þessi svipur er á byrjunarstigi, þá er hægt að sprauta fylliefnum (hyaluronic-sýru) innan við fellinguna og leiðrétta hann að hluta. Hyaluronic-sýra er fjölsykrungur sem smám saman eyðist upp, yfirleitt á 12-14 mánuðum.

Algengt er að deyfa svæðið sem sprautað er í, oft með deyfikremi sem þú ert með í u.þ.b. 20 mín.  Til þess að minnka líkur á marblettum mæli ég með því að sleppa lýsi, omega 3 og hörfræjaolíu eða öllu sem getur þynnt blóðið í 10 daga. Sumir eru á nauðsynlegri blóðþynningu og þá er hægt að minnka mar með kælingu á svæðið eftir sprautu.

Yfirleitt eru um 1 ml í hverri sprautu og verðið er á bilinu u.þ.b. 70 þúsund fyrir hverja meðferð. Verðið fer m.a. eftir tegund hyaluronic-sýrunnar sem er misdýr í innkaupum.

Gangi þér vel og bestu kveðjur,

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Þórdísi spurningu HÉR. 

mbl.is/ThinkstockPhotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál