Tribeca Film Festival er haldin í New York á vorin og nú fer hátíðinni í ár senn að ljúka. Stjörnurnar hafa verið duglegar að mæta á viðburði í fötum sem minna okkur á það að sumarið er á næsta leiti.
Áberandi litir, skemmtileg munstur og afslappaður klæðnaður einkennir fatavalið hjá þeim flestum. Það eru þó alltaf stjörnur eins og Emma Watson sem kjósa að mæta í fágaðri og klassískari fatnaði.