Lila Grace Moss Hack, dóttir fyrirsætunnar Kate Moss og Jefferson Hack, stofnanda Dazed Media, er byrjuð að sitja fyrir. Hún kom fram í auglýsingu fyrir hárgreiðslustofu í Selfridges á Oxford Street í London sem sérhæfir sig í fléttum.
Samkvæmt The Telegraph sést Lila Grace á myndinni frá The Braid Bar með Stellu Jones vinkonu sinni en hún er dóttir Mick Jones úr The Clash. Flétturnar sem þær skarta eru síðan nefndar í höfuðið á þeim.
Þrátt fyrir að Lila Grace eigi ekki langt að sækja hæfileikana er hún ekki með umboðsskrifstofu enda hafa foreldrar hennar reynt að halda henni frá kastljósi fjölmiðlanna. En nú þegar móðir hennar er búin að stofna umboðsskrifstofu gætu verið breytingar á. Sjálf var Kate Moss uppgötvuð þegar hún var 14 ára.