Pippa skellti sér út á lífið í fokdýrum kjól

Pippa hefur fágaðan smekk.
Pippa hefur fágaðan smekk. Skjáskot / The Guardian

Pippa Middleton, systir hertogaynjunnar af Cambridge, er í óða önn að skipuleggja brúðkaup sitt sem fram fer á næstunni. Hún gaf sér þó tíma til að skella sér út á lífið á dögunum, og klæddist að sjálfsögðu kjól í fínna laginu.

Fyrir valinu varð blár kjóll úr smiðju Erdem, en kjóllinn er skreyttur forláta kristöllum eins og fram kemur í frétt Telegraph. Margar konur geta einungis látið sig dreyma um að eignast slíka flík, enda kostar kjóllinn 1.735 sterlingspund sem samsvarar tæpum 240 þúsund íslenskum krónum.

Middleton og unnusti hennar, James Matthews, ætla að ganga í það heilaga síðar í mánuðinum, nánar tiltekið 20. maí.

Pippa klæddist kjól úr smiðju Erdem.
Pippa klæddist kjól úr smiðju Erdem. Skjáskot / The Guardian
Pippa vakti mikla athygli þegar hún var brúðarmær í hinu …
Pippa vakti mikla athygli þegar hún var brúðarmær í hinu konunglega brúðkaupi á sínum tíma. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál