Brigitte Trogneux er frönsk og flott

Brigitte Trogneux, næsta forsetafrú Frakka, er með flottan stíl.
Brigitte Trogneux, næsta forsetafrú Frakka, er með flottan stíl. mbl.is/AFP

Það mætti segja að Melania Trump sé komin með samkeppni eftir að nýr forseti Frakklands, Emmanuel Macron, var kosinn um síðustu helgi. Eiginkona hans, Brigitte Trogneux, er nefnilega enginn auli þegar kemur að klæðaburði og er hún strax farin að sýna sinn einstaka stíl. 

Trogneux er mikil áhugamanneskja um tísku og samkvæmt Guardian þá hefur hún verið í fremstu röð á tískusýningum um árabil. Á sunnudaginn vakti hún athygli fyrir bláan Louis Vuitton-mótorhjólajakka með silfurlituðu leðri. Mörgum þykir þetta djarft þar sem  vaninn er að eiginkonur verðandi forseta fagni kosningasigri í settlegum kjólum eða drögtum. 

Brigitte Trogneux er með afslappaðan stíl. Hér er hún ásamt …
Brigitte Trogneux er með afslappaðan stíl. Hér er hún ásamt eiginmanni sínum Emmanuel Macron. mbl.is/AFP

Jakkinn er í miklu uppáhaldi hjá hinni 64 ára gömlu Trogneux en hún hefur meðal annar sést í honum í vetur við leðurbuxur. Trogneux er því ekki á valdi stílista sem eru í ímyndunarherferð heldur gengur hún í fötum sem henni finnst falleg, og hún hefur góðan smekk sem betur fer. 

Samkvæmt The Telegraph er líklegt að sjá Brigitte Trogneux í þröngum leðurbuxum, hælaskóm og með bóhemískan klút. Hún er líka ekki hrædd við að klæðast kjólum sem ná ekki einu sinni niður á hné.

Brigitte Trogneux er hér fyrir miðju í flottum gallabuxum.
Brigitte Trogneux er hér fyrir miðju í flottum gallabuxum. mbl.is/AFP

Stuttur hvítur kjóll og glansandi svartar sokkabuxur er eitthvað sem ekki þær sem eru komnir yfir fermingaraldur bera vel en það gerir hinsvegar hin lífsglaða Brigitte Trogneux sem virðist ganga í fötum sem gleðja hana. Það verður spennandi að sjá hvernig stíll Trogneux verður næstu árin. 

Brigitte Trogneux er með stíl sem ekki margar forsetafrúr eru …
Brigitte Trogneux er með stíl sem ekki margar forsetafrúr eru með hér er hún í töffaralegum jakka. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál