Hversu lengi á klæða sig eins og barnið sitt?

Kris Jenner og dóttir hennar Kylie Jenner klæddust sama gallanum …
Kris Jenner og dóttir hennar Kylie Jenner klæddust sama gallanum á sama tíma. skjáskot/Daily Mail

Það er fátt krúttlegra en þegar lítil börn eru klædd í stíl við foreldra sína. En hvenær er tími til þess að hætta slíku, kannski um eða rétt eftir að börn byrja í skóla? En ef eitthvað er að marka Kris Jenner á aldrei að hætta því. 

Hin 61 árs gamla stjörnumamma hefur sést í eins eða svipuðum fötum og dætur hennar ganga í. Kris tók þetta á næsta stig þegar hún fór til Perú í vikunni með Kylie Jenner. Kris og hin 19 ára Kylie voru klæddar í eins náttgalla þegar þær stigu um borð í flugvélina. 

Beyoncé er ein þeirra stjarna sem er dugleg að samræma klæðnað sinn og dóttur sinnar. Hins vegar verður að hafa það í huga að Blue Ivy er fimm ára en ekki 19 ára. 

Beyoncé og Blue Ivy.
Beyoncé og Blue Ivy. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál