Katrín hertogaynja var mætt í vinnuna á mánudaginn þrátt fyrir að hafa staðið í ströngu í brúðkaupi Pippu Middleton um helgina. Hertogaynjan mætti í fallegum grænum blómakjól á garðyrkjusýningu í Chelsea í London.
Samkvæmt Daily Mail er kjóllinn sem Katrín klæddist frá merkinu Rochas og kostar hann tæpar 200 þúsund krónur. Þetta mun því ekki hafa verið ódýr mánuður hjá hertogaynjunni en hún var í fallegum ljósbleikum Alexander McQueen-kjól í brúðkaupi systur sinnar.