Stjúpmæðgur á leið í jarðarför í Vatíkaninu?

Það mætti halda að stjúpmæðgurnar væru staddar í jarðarför en …
Það mætti halda að stjúpmæðgurnar væru staddar í jarðarför en ekki opinberri heimsókn. mbl.is/AFP

Forseti Bandaríkjanna var í opinberri heimsókn í Vatíkaninu og með honum í för voru meðal annars eiginkona hans, Melania, og dóttir hans Ivanka. Það vakti athygli að þær skyldu klæða sig í svartan síðerma kjól með slæðu eins og hefð er fyrir í Vatíkaninu en hvorug notaði slæðu í heimsókn sinni í Sádi-Arabíu fyrir helgi. 

Frans páfí þykir einnig hafa slakað á reglum Vatíkansins og því líklega ekki krafist klæðaburðarins. Einhverjir myndu halda að þær væru í jarðarför í Vatíkaninu en ekki í opinberri heimsókn. Þær hafa þó ef til vill aðeins viljað sýna virðingu en samkvæmt The Telegraph var Melania í kjól frá Dolce and Gabbana sem er einmitt ítalskt merki. 

Melania Trump.
Melania Trump. mbl.is/AFP
Ivanka Trump ásamt Jared Kushner.
Ivanka Trump ásamt Jared Kushner. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál