„Ef það er ekki á Instagram, þá gerðist það ekki,“ segir máltækið. Fyrirsætan og Instagram-drottningin Carlotta Khol gaf Popsugar innsýn í það hvernig ætti að ná góðum Instagram-myndum úr sumarfríinu.
Khol leggur áherslu á að það krefst vinnu að taka góðar Instagram-myndir. Helmingur vinnunnar fer fram áður en myndavélin er tekin upp. Áður en hún leggur af stað í ferðalagið rannsakar hún vel fyrir hvað áfangastaðurinn sé þekktur. Eftir það þarf að finna áhugaverða staði. „Ég er alltaf með opin augun fyrir pastellitum, neonljósum, blómaveggfóðri, viðarveggjum, bílum í töff litum, blómaökrum, listinn er endalaus,“ segir Khol. En hún segist jafnframt alltaf leita að gamaldags matsölustað og gömlum módelum.
Hér er tékklistinn frá Khol:
1. Staðsetning
Khol vill ekki meina að það þurfi að taka myndina akkúrat við Eiffel-turninn en það þarf samt að vera áhugaverður bakgrunnur hvort sem það er litur, áferð eða mynstur. Hún leggur líka áherslu á að það sé ekki of mikið að gerast í bakgrunninum.
2. Klæddu þig upp fyrir tilefnið
Ef þú ert á leiðinni eitthvað sem er þess virði að taka Instagram-mynd mælir Krohl með því að leggja metnað í að velja rétta dressið. Hún reynir til dæmis að klæða sig í stíl við áfangastaðinn sem hún er að fara til. Þegar hún ferðaðist um grískar eyjar klæddi hún sig til að mynda mikið í hvítt og blátt.